Hljóðheimur fyrir Monster Energy, 'BURAZĀZU | The Hirano Brothers'

Samdi og pródúseraði nokkur 'cues' fyrir hljóðheiminn í Monster Energy heimildarmyndinni „BURAZĀZU | The Hirano Brothers“. Myndin fjallar um ólympíugullverðlaunahafana og brautryðjendur í heimi snjóbretta, bræðurna Kaishu og Ayumu Hirano. Verkefnið var krefjandi frá sound design perspektívi þar sem myndin inniheldur mikið af slow-mo skotum og þurfti tónlistin að magna bæði áhrif þeirra og tilfinningalega dýpt.

Soundtrackið hefst frá tímasetningunni í spilaranum. Unnið með hinum frábæru Marcin Sonnenberg og Paulinu Derska. Sérstakar þakkir til Mike Turner hjá Clearly Music Services.