Pródúsering, hljóðblöndun og lagasmíði í Logic Pro
6 Vikna Námskeið
Lærðu að pródúsera, taka upp og hljóðblanda eigin tónlist í Logic Pro í þessu 6 vikna námskeiði. Námskeiðið er kennt vikulega í litlum hópum í hljóðveri á Eyjarslóð 7. Hver kennslustund er 2 klukkustundir (heildarlengd námskeiðs er 12 klukkustundir).
HVAÐ ER KENNT?
-
Allt sem þú þarft að kunna frá A-Ö til að koma laginu þínu úr hugmynd yfir í Logic.
-
Hljóðblöndun með effektum eins og compression, limiter, EQ, clipping, reverb o.fl.
-
Sound selection og layering.
-
Að taka upp og hljóðblanda söng.
-
Hvernig maður nær ‘pro’ soundi á lögin sín.
-
Notkun á stúdíóbúnaði eins og hljóðkortum, MIDI græjum, formögnurum og hljóðgervlum.
-
Einföld tónfræði sem gagnast pródúserum og lagahöfundum.
-
Að skrifa grípandi laglínur og hooks.
-
Hljóðhönnun með synthum eins og Serum og Vital.
-
Tímarnir eru kenndir í stúdíói Eyjarslóð 7, Reykjavík.
FAQs
Þetta námskeið er sérsniðið fyrir byrjendur eða þá sem hafa reynslu en vilja fá sterkari grunn áður en lengra er haldið.
Tölva og forrit (eins og FL Studio, Logic eða Ableton) er góður grunnur. Hins vegar er hægt að taka tímana með prufueintökum af hugbúnaðinum. Mörg fyrirtæki bjóða upp á frábær 'trial versions' af hugbúnaðinum sínum ókeypis, sem er meira en nóg til að byrja með. Hafðu samband við mig í contact flipanum fyrir frekari upplýsingar um það.
Ég hef haldið fjölda námskeiða um pródúseringu og lagasmíði við Háskóla Íslands (EHÍ), haldið námskeið og fyrirlestra við Skýið Skapandi Skóla og kennt grunnnámskeið í Logic Pro við Tjarnarskóla undanfarin ár. Ég er með BA gráðu í Tónlistarframleiðslu frá Linnéuniversitet í Svíþjóð og er Logic Certified Pro vottun frá Apple. Ég hef unnið sem pródúser í fullu starfi í meira en fjögur ár og hef aflað mér reynslu í ýmsum tónlistarstefnum.
Föst vikuleg tímasetning er fundin í samráði við skráða nemendur. Algengast er að námskeiðin séu haldin á virkum degi eftir 17:00.